Bensín Borið hefur á gangtruflunum í bílum í vetur.
Bensín Borið hefur á gangtruflunum í bílum í vetur. — Morgunblaðið/Kristinn
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Ég er búinn að fá óvenju margar ábendingar um gangtruflanir í bensínbílum síðan um áramót,“ segir Leó M.

Björn Jóhann Björnsson

bjb@mbl.is

„Ég er búinn að fá óvenju margar ábendingar um gangtruflanir í bensínbílum síðan um áramót,“ segir Leó M. Jónsson véltæknifræðingur í samtali við Morgunblaðið en hann heldur því fram að olíufélögin flytji inn lélegra bensín en áður og gæðaeftirliti með innflutningi þess sé ábótavant. Hann segir þessar bilanir kosta bíleigendur stórfé. Samkvæmt sínum upplýsingum frá bílaumboðum séu þessar truflanir raktar til eldsneytisins.

Leó, sem skrifar reglulega um bílamál í aukablað Morgunblaðsins, Finnur.is, hefur komið ábendingu um þetta á framfæri við FÍB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að þetta verði kannað nánar. Hann tekur undir með Leó að svo virðist sem brotalöm sé á eftirliti með innflutningi á eldsneyti.

Leó ritaði einnig um þetta pistil á vefsíðu sinni, leoemm.com. Þar segir hann mest bera á kvörtunum um þetta þegar hlýnar í veðri eftir frostakafla. Vélin drepi á sér vegna þess að rakamengun í bensíninu, mögulega eftir sjó, þéttist og verði að vatnsdropum á botni sogreinarinnar. Þegar magnið nái ákveðnum mörkum drepi vélin á sér, oftast í lausagangi. Annars lýsir Leó þessum gangtruflunum svo:

„Sameiginlegt er að auk þess sem vélin gengur skrykkjótt, jafnvel með rykkjum við inngjöf á hún það til að steindrepa á sér, t.d. á rauðu ljósi, og tekur ekki við sér í starti. 4-5 mínútum seinna rýkur hún í gang. Þetta getur gerst nokkrum sinnum á dag en stundum líða dagar á milli.“

Leó segist hafa sannað mál sitt um lélegra bensín með því að blanda ísvara út í bensínið, um 100 ml út í 50-60 lítra af bensíni. Vélin hætti þá oftast að drepa á sér í tíma og ótíma.

Leó segir hið grátbroslega við þetta að olíufélögin auki tekjur sínar um tugi milljóna króna með því að selja bíleigendum ísvara sem kostar margfalt lítraverð bensíns.

Hann gagnrýnir jafnframt hið opinbera fyrir slælegt eftirlit með innflutningi á eldsneyti. Í gildi séu lög og reglugerðir sem ekki sé farið eftir.

Runólfur Ólafsson segir nauðsynlegt að láta óháðan aðila skoða innihald eldsneytisins. Sér vitanlega fari slíkt eftirlit ekki fram á vegum hins opinbera heldur láti olíufélögin, sameiginlega, rannsóknastofuna Fjölver fara yfir innihald þess sem flutt er inn. Öll olíufélög taki auk þess inn birgðir gegnum sama aðilann.

Strangar gæðakröfur

Herbert Herbertsson, tæknisérfræðingur hjá N1, segir bensíninnflutning fara fram eftir ströngum gæðakröfum samkvæmt samevrópskum reglum, en bensínið er keypt inn beint frá Statoil í Noregi. Efast hann stórlega um að gangtruflanir í bílum megi rekja til eldsneytisins en öllum sé velkomið að láta kanna innihald þess nánar sem N1 flytur inn.

Jóhann Þorsteinsson, verkstæðisformaður hjá Toyota, segist kannast við þessar bilanir og þær megi mögulega rekja til eldsneytisins. Hann geti þó ekki fullyrt um það. Jóhann segir umboðið ekki hafa fengið marga bíla til sín út af þessu, innan við tíu.

UMHVERFISSTOFNUN

Fær árlega til sín skýrslu

Olíufélögunum ber að skila árlega skýrslu til Umhverfisstofnunar, fyrir 1. mars, um hvað þau flytja inn á ári af eldsneyti og innihald þess, samkvæmt gildandi reglugerð um fljótandi eldsneyti. Athugasemdir eru þá gerðar ef ástæða þykir til. Ekki er því um beint neytendaeftirlit að ræða með innfluttum farmi hverju sinni, heldur er markmið með skýrslugjöfinni meira að fylgjast með umhverfisáhrifum af innfluttu eldsneyti. Þannig skoðar stofnunin t.d. ekki hvort möguleg aðskotaefni hafi áhrif á gangverk bílanna.