Smokkur Gaga í latex-fötunum, umkringd aðdáendum.
Smokkur Gaga í latex-fötunum, umkringd aðdáendum.
Tónlistarkonan Lady Gaga mætti í heldur óvenjulegum fatnaði, eins og hennar er von og vísa, í morgunsjónvarpsþáttinn Good Morning America fimmtudaginn sl.
Tónlistarkonan Lady Gaga mætti í heldur óvenjulegum fatnaði, eins og hennar er von og vísa, í morgunsjónvarpsþáttinn Good Morning America fimmtudaginn sl. Gaga sagði að leitað hefði verið innblásturs í latex-smokkum við hönnun fatanna en með því að klæðast þeim vildi hún leggja baráttunni gegn útbreiðslu alnæmis lið og minna á mikilvægi smokksins í þeim efnum. Klæðin voru húðlituð og úr gúmmíi sem og skótauið en á höfði sér bar Gaga hvítan hatt.