Undrakonan Wonder Woman í allri sinni dýrð.
Undrakonan Wonder Woman í allri sinni dýrð.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Leikkonan Adrianne Palicki hefur verið ráðin í hlutverk ofurhetjunnar og amasónunnar Undrakonunnar í sjónvarpsþáttunum Wonder Woman sem sjónvarpsstöðin bandaríska NBC framleiðir. Palicki kannast þeir við sem horft hafa á þættina Friday Night Lights.
Leikkonan Adrianne Palicki hefur verið ráðin í hlutverk ofurhetjunnar og amasónunnar Undrakonunnar í sjónvarpsþáttunum Wonder Woman sem sjónvarpsstöðin bandaríska NBC framleiðir. Palicki kannast þeir við sem horft hafa á þættina Friday Night Lights. Í þáttunum mun segja af Díönu Prince sem bregður sér í gervi Undrakonunnar til að berjast gegn glæpum í Los Angeles. NBC hefur fengið handritshöfundinn og framleiðandann David E. Kelly í lið með sér en hann á að baki þáttaraðir á borð við Chicago Hope, The Practice, Ally McBeal, Boston Public og Boston Legal.