Ekki er langt síðan það þótti agalega smekklegt og sniðugt að hafa lítinn zen-sandkassa á skrifborðinu. Þar mátti raka hvítum sandi og raða upp steinum til að skapa hugarró í amstri dagsins. En hver þarf hugarró þegar hann hefur dreka og riddara?

Ekki er langt síðan það þótti agalega smekklegt og sniðugt að hafa lítinn zen-sandkassa á skrifborðinu. Þar mátti raka hvítum sandi og raða upp steinum til að skapa hugarró í amstri dagsins.

En hver þarf hugarró þegar hann hefur dreka og riddara?

Þessi bráðskemmtilegi skrifborðs-sandkassi er algjört met. Hrífan og sandfatan er reyndar enn á sínum stað en riddaraævintýrið sem fylgir með ætti að lífga allhressilega upp á hvaða vinnurými sem er.

Finna má settið á Fatbraintoys.com („My Little Sandbox Play Set – Knights and Dragons“) og kostar rétt tæpa 28 dali.

ai@mbl.is