Mál og menning Gjaldþrotið dregur dilk á eftir sér.
Mál og menning Gjaldþrotið dregur dilk á eftir sér. — Morgunblaðið/Eggert
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Kristján B. Jónasson, formaður Félags bókaútgefenda, segir að bókaútgefendur telji að þeir tapi um 50 milljónum króna á gjaldþroti Máls og menningar við Laugaveg.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Kristján B. Jónasson, formaður Félags bókaútgefenda, segir að bókaútgefendur telji að þeir tapi um 50 milljónum króna á gjaldþroti Máls og menningar við Laugaveg. Þeir hafi ekki fengið greitt fyrir seldar bækur í búðinni frá því fyrir jól og fái væntanlega ekki til baka óseldar bækur.

Öllum á óvart

Bókaútgefendur á Íslandi eru annaðhvort fyrirtæki með litla veltu eða miðlungsstór fyrirtæki og aðeins einn útgefandi telst til stórra fyrirtækja. Kristján segir að velta margra sé á bilinu 50 til 70 milljónir og ætla megi að tap þeirra á gjaldþrotinu sé um 1,5 til 2 milljónir að meðaltali. „Það er ansi stór hluti af ársveltunni,“ segir hann.

Kristján segir að staðið hafi á greiðslum frá eigendum Máls og menningar. Margir bókaútgefendur hafi því rætt við þá fyrir jólin og verið fullvissaðir um að vel væri að hlutum staðið. Útgefendur hafi líka horft til þess að eigendurnir væru með mörg járn í eldinum, rækju ýmis fyrirtæki svo sem steypustöðvar, fasteignafélög og hótel við Laugaveg 18. Þeir væru fjársterkir, hefðu til að mynda selt Reykjavíkurborg fasteignirnar við Laugaveg 4 og 6 fyrir 580 milljónir og ættu húsnæðið þar sem Mál og menning hefði verið. Útgefendur hafi því treyst eigendunum.

„Það er eins og gjaldþrotið hafi komið öllum í opna skjöldu,“ segir Kristján. Þrátt fyrir að útgefendur hafi treyst eigendum Máls og menningar sættu ekki allir sig við framkomu þeirra. Kristján segist vita af einum sem hafi stöðvað afgreiðslu til þeirra, annar hafi aðeins skipt við þá gegn staðgreiðslu og sumir hafi verið byrjaðir að innkalla bækur sínar. Sú staða sé reyndar ekki ný af nálinni í bókaviðskiptum og menn óttist ekki endilega gjaldþrot hjá viðskiptavini sínum þó þeir bregðist við með einhverjum hætti til þess að þrýsta á að fá greitt fyrir vörur sínar. „Ég held að það hafi ríkt ákveðið traust gagnvart þessum eigendum.“

Kristján segir að bókaútgefendur beri sig mjög illa vegna gjaldþrotsins. Þeir megi ekki við neinum áföllum og því hafi svona skellur mjög alvarleg áhrif á stöðu þeirra, auk þess sem hann dragi kjark úr mönnum. „Þetta er mjög mikil blóðtaka,“ segir hann.

Mikið áfall

2009 varð Penninn gjaldþrota, eigendur Office1 fóru í nauðungarsamninga og A4 varð gjaldþrota, auk annarra minni gjaldþrota, en ljóst er að mikil óvissa ríkir í röðum bókaútgefenda í kjölfar þessa gjaldþrots. „Þetta er stærsta gjaldþrot í greininni og mjög mikið áfall. Helvítis högg,“ segir Kristján.

IÐA UTAN BANKANNA

Samkeppni

„Það gengur ótrúlega vel hjá okkur,“ segir Arndís B. Sigurgeirsdóttir, sem rekur bókarverslunina Iðu við Lækjargötu. Hún segir að hún sé í mikilli samkeppni við bankana. „Nánast öll bóksala nema hjá Iðu er í eigu bankanna,“ segir hún og áréttar að hún geti ekki auglýst eins og þessi fyrirtæki sem virðist hafa ótakmarkaðan aðgang að fjármagni. Samt nái hún að veita þeim samkeppni og ekki síst í erlendum bókum sem hún flytji sjálf inn.

Leiðrétting 22. febrúar - Bókabúð annað en forlag

Rétt er að árétta að Bókmenntafélagið Mál og menning, sem á helmings hlut í Forlaginu við Bræðraborgarstíg, hefur ekkert að gera með Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg. Bókaútgáfa Forlagsins gengur vel en þegar greint var frá gjaldþroti Máls og menningar við Laugaveg í blaðinu sl. laugardag láðist að geta þess að um bókabúðina var að ræða og er beðist velvirðingar á ónákvæmninni.