Baldur Arnarson baldura@mbl.is Einar Már Guðmundsson rithöfundur skorar á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að standa við orð sín og neita að staðfesta nýja Icesave-samninginn.

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Einar Már Guðmundsson rithöfundur skorar á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að standa við orð sín og neita að staðfesta nýja Icesave-samninginn. Einar Már kveðst vera í hópi þeirra sem „endurheimtu“ forsetann þegar hann neitaði að staðfesta síðasta samning.

Einar er nú á upplestrarferð í Danmörku en gaf sér tíma þegar blaðamaður fréttavefs Morgunblaðsins, mbl.is, náði tali af honum um miðjan dag í gær. Rithöfundurinn dró þá blað úr vasa sínum og las tilvitnun í nýlegt viðtal við forsetann: „Hversu langt er hægt að ganga og fara fram á að venjulegt fólk, bændur, sjómenn, læknar og hjúkrunarfræðingar, axli ábyrgð á föllnu bönkunum? Sú spurning, sem er kjarninn í Icesave-málinu, mun brenna á mörgum í ríkjum Evrópu.“

Hitti naglann á höfuðið

Einar Már segir forsetann hafa hitt naglann á höfuðið.

„Þetta er kjarni málsins, enda fannst mörgum Íslendingum sem þeir hefðu endurheimt forsetann þegar hann hafnaði lögunum, að þá hefði hann vaknað eftir allt of langt faðmlag sitt við auðmennina. Ég var í þessum hópi.

Málið snýst um lýðræði, að þjóðin fái sjálf að ákveða þetta. Ég fæ ekki séð að það geti skaðað nokkurt mál að almenningur fái að taka afstöðu til þess,“ segir Einar Már.