Í huga sumra er prílið upp á toppinn stanslaust stríð. Og til að vinna stríð þarf auðvitað réttu hertólin. Hér er kominn þessi fíni slöngvivaður til að verja básinn eða slengja smámunum í kollegana.
Í huga sumra er prílið upp á toppinn stanslaust stríð. Og til að vinna stríð þarf auðvitað réttu hertólin.
Hér er kominn þessi fíni slöngvivaður til að verja básinn eða slengja smámunum í kollegana.
Hönnunin byggist í smæstu atriðum á slöngvivöðum miðalda og þessi á að geta varpað litlum kúlum allt að 4,5 metra vegalengd. Með í pakkanum fylgir leir til að móta litlar kúlur.
Slöngvivaðurinn kostar 24 dali á Fatbraintoys.com („Pathfinders Catapult Kit“) ai@mbl.is