Helgin var annasöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Á föstudag fundust fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði og karlmaður um þrítugt var handtekinn í kjölfarið. Viðurkenndi hann að hafa átt 20 grömm af amfetamíni sem fannst.
Helgin var annasöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Á föstudag fundust fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði og karlmaður um þrítugt var handtekinn í kjölfarið. Viðurkenndi hann að hafa átt 20 grömm af amfetamíni sem fannst. Brotist var inn í sjö bíla í Reykjavík um helgina og stolið m.a. GPS-tækjum, töskum og geislaspilurum. Um 220 ökumenn voru stöðvaðir í sérstöku umferðareftirliti. Sex voru teknir fyrir ölvunarakstur og fjórir voru undir áhrifum fíkniefna.