Kræf Lag Rihönnu, „S&M“, fjallar í grófum dráttum um kvalalosta.
Kræf Lag Rihönnu, „S&M“, fjallar í grófum dráttum um kvalalosta. — Reuters
Tónlistarkonan Rihanna hefur sent frá sér endurhljóðblandaða útgáfu af smelli sínum „S&M“ en á henni leggur henni lið stalla hennar Britney Spears.
Tónlistarkonan Rihanna hefur sent frá sér endurhljóðblandaða útgáfu af smelli sínum „S&M“ en á henni leggur henni lið stalla hennar Britney Spears. Rihanna tísti á Twitter skömmu áður en hinni nýju útgáfu var hleypt af stokkunum og sagði þar að „kynþokkafullt samstarfsverkefni“ væri á leiðinni, að Britney væri samstarfskonan. Ekki stóð á svörum frá Spears: „Þú ert svo mikill stríðnispúki! Mér líkar það, mér líkar það...“ Forsaga málsins er sú að Rihanna gerði könnun á Twitter og spurði í henni aðdáendur sína hvaða listamanni þeir myndu helst vilja að hún starfaði með. Meirihlutinn nefndi Spears.