Mikill fjöldi lausna barst við vorjafndægragátunni og voru margir með rétta lausn á henni.
Lausnin er:
Yfir veðri allt til páska
einmánuður brúnir hnyklar,
harpa eltir hann með gáska,
hringla í kuli skerplu lyklar.
Svo er hvatningin: „Kannski verður veðrið bara svona næstu þrjá mánuði?“
Esther Garðarsdóttir, Iðavöllum 2, 240 Grindavík, hlýtur bókina Eyjafjallajökull – Stórbrotin náttúra eftir Ara Trausta Guðmundsson og Ragnar Th. Sigurðsson og Ása Valdimarsdóttir, Esjubraut 31, 300 Akranesi, hlýtur nýjustu bækurnar úr bókaflokknum um Kirkjur Íslands.