— Morgunblaðið/Albert Kemp
Eftir Albert Kemp Stöðvarfjörður | Unnið er að stækkun og lagfæringu á bryggjum fyrir smábáta á Stöðvarfirði.

Eftir Albert Kemp Stöðvarfjörður | Unnið er að stækkun og lagfæringu á bryggjum fyrir smábáta á Stöðvarfirði.

Margir smábátar voru gerðir út þaðan á síðasta fiskveiðiári til strandveiða og er búist við að enn fleiri bátar verði gerðir þaðan út á komandi sumri.

Stöðvarfjörður þykir einkar heppilegur fyrir útgerð strandveiðibáta. Þaðan er stutt á þau mið sem bátarnir stunda. Hafnaraðstaðan er góð og við lengingu á bryggjunum verður betra að gera út frá Stöðvarfirði en víða annars staðar á landinu.