Ánægðar Íslensku stúlkurnar voru brosmildar í leikslok í gær.
Ánægðar Íslensku stúlkurnar voru brosmildar í leikslok í gær. — Ljósmynd/Íris Björk
Stúlknalandslið Íslands í knattspyrnu er komið í úrslitakeppni fjögurra liða um Evrópumeistaratitilinn í aldursflokki 17 ára og yngri. Íslensku stúlkurnar lögðu Pólverja að velli, 2:0, í Póllandi í gær og höfðu áður sigrað Englendinga, 2:0.

Stúlknalandslið Íslands í knattspyrnu er komið í úrslitakeppni fjögurra liða um Evrópumeistaratitilinn í aldursflokki 17 ára og yngri. Íslensku stúlkurnar lögðu Pólverja að velli, 2:0, í Póllandi í gær og höfðu áður sigrað Englendinga, 2:0. Þar með eru þær þegar orðnar sigurvegarar í sínum riðli í 16-liða úrslitum keppninnar þótt þær eigi einn leik eftir sem er gegn Svíum á fimmtudag.

Þetta er besti árangur sem íslenskt knattspyrnulandslið hefur nokkru sinni náð á alþjóðavettvangi.

Stúlkurnar spila um verðlaunasætin í Nyon í Sviss í lok júlí og þar er meira í húfi en Evrópumeistaratitill. Þrjú af þessum fjórum liðum komast nefnilega í lokakeppni heimsmeistaramótsins sem haldið verður í Aserbaídsjan á næsta ári. Íþróttir