Vorfundur Jarðhitafélags Íslands verður haldinn í dag, þriðjudaginn 12. apríl, undir yfirskriftinni Stendur jarðhitinn í stjórnkerfinu? Er þar m.a.

Vorfundur Jarðhitafélags Íslands verður haldinn í dag, þriðjudaginn 12. apríl, undir yfirskriftinni Stendur jarðhitinn í stjórnkerfinu? Er þar m.a. vísað til vinnu við mótun heildstæðrar orkustefnu og rammaáætlunar, auk umræðna um auðlindanýtingu, eignarhald, sjálfbærni o.fl.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ávarpar fundinn og erindi flytja þau Kristín Haraldsdóttir, forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar HR, og Júlíus J. Jónsson, forstjóri HS Orku. Gunnar Tryggvason úr stýrihóp um mótun heildstæðrar orkustefnu og Svanfríður Jónasdóttir, formaður verkefnisstjórnar rammaáætlunar, taka þátt í pallborðsumræðum. Fundarstjóri verður Ragna Karlsdóttir hjá ÍSOR. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi 1 og hefst kl. 14.00.