Umferð gekk að mestu leyti stórslysalaust fyrir sig um helgina. Þó valt bíll á veginum við Laugarvatn síðdegis í gær. Karl og kona slösuðust og voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur.

Þá myndaðist umferðaröngþveiti í Norðfjarðargöngum að kvöldi laugardagsins þegar tveir flutningabílar fóru inn í einbreið göngin að sunnanverðu og stífluðu þau.