Strákastelpa Lítil stelpa ákveður að ljúga því að hún sé strákur. Það reynist skemmtilegur leikur en verður óvænt flókinn þegar vinkona hennar verður ástfangin af henni.
Strákastelpa Lítil stelpa ákveður að ljúga því að hún sé strákur. Það reynist skemmtilegur leikur en verður óvænt flókinn þegar vinkona hennar verður ástfangin af henni.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Kvikmyndir Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Þegar ég var ungur var hluti af skyldulesningunni að fara yfir Naked Lunch eftir Burroughs, Á veginum eftir Kerouac og ljóð Ginsbergs.

Kvikmyndir

Börkur Gunnarsson

borkur@mbl.is

Þegar ég var ungur var hluti af skyldulesningunni að fara yfir Naked Lunch eftir Burroughs, Á veginum eftir Kerouac og ljóð Ginsbergs. Þetta voru bítnikkararnir, þessir töffarar sem lifðu í angist og reiði, í eiturlyfjum og andskotanum. Hvorki Burroughs né Kerouac heilluðu mig það mikið að ég læsi mikið meira eftir þá, Kerouac var svo einfaldur og afslappaður, enda montaði hann sig af því að hafa skrifað Á veginum á sjö dögum. Burroughs var svo sýrður að þrátt fyrir bráðsnjallar einræður og líkingar inni á milli lokkaði hann mann ekki. En Ginsberg var nógu magnaður til að maður læsi hann þokkalega vel. Öskrandi, eða ýlfrandi svo vitnað sé til frægasta ljóðsins hans; reiði, ríðinga, hommaástarsagna, haturs, ástar, andúðar á stríði en einhverskonar hassreykur yfir öllu og dauðadaður. Nú er loksins komin í bíóhús mynd sem er byggð á lífi og ljóðum Ginsbergs.

Hinsegin og meira hinsegin

Hinn 29. júlí byrjuðu Hinsegin bíódagar í Bíó Paradís og verða fram til 7. ágúst. Þessi bíóhátíð var víst haldin árlega í einhvern tíma en hefur legið í dvala síðustu fimm árin. Dagarnir eru haldnir í samvinnu við Hinsegin daga sem að þessu sinni fara fram 4.-7. ágúst. Hátíðin er eins og vanalega með margvíslegum uppákomum eins og dragkeppni á miðvikudaginn, opnunarhátíð á fimmtudaginnn og síðan hinni hápunktinum á laugardaginn sem er gangan sem að þessu sinni verður ekki á Laugaveginum heldur er gengið frá BSÍ og yfir á Arnarhól þar sem tónleikarnir fara fram. Ástæðan fyrir breyttum göngustað er að í fyrra mættu 70.000 manns og örtröðin var of mikil og því er verið að reyna að finna plássmeiri göngustað.

En samhliða þessari hátíð samkynhneigðra eru bíódagarnir með bíómyndum eins og Howl, Brotherhood og Tomboy. Allt myndir sem vöktu þónokkra athygli í fyrra og hittifyrra og eru allar tengdar samkynhneigð með einhverjum hætti. Howl (Ýlfur) er nafnið á tilraunamynd um Allen Ginsberg sem einmitt var aldrei alveg viss um kynhneigð sína og orti mikið um samkynhneigð. Hann var meðal annars rekinn úr Columbia-háskólanum eftir að skólastjórinn hafði komið að honum hálfnöktum í rúminu með rithöfundinum Kerouac. Ginsberg ólst upp hjá frjálslyndum foreldrum sem héngu mikið í kringum bókmenntahópa Greenwich Village í New York. Mamma hans var með geðklofa sem ágerðist með árunum og þegar faðir Allens þreyttist á að annast móðurina þurfti strákurinn oft að sjá um hana og hlusta á ruglingslegt tal hennar og paranoju. Hann sló fyrst í gegn með ljóðum sínum eftir frægan ljóðaupplestur á ljóðinu Ýlfur í Six Gallery í San Francisco árið 1955 og var eftir það gefin út af bókaforlaginu City Lights, en vegna ósiðlegs texta Ginsbergs var forlagið lögsótt. Þessi tilraunamynd um Ginsberg hefur farið víða og hlotið mörg alþjóðleg verðlaun. Í ólínulagaðri frásögn myndarinnar er blandað saman bútum úr lífi Ginsbergs á fimmta og sjötta áratugnum, frumflutningi hans á hinu fræga ljóði sínu Howl í Six Gallery, sviðsetningu ljóðsins í hreyfimynd og réttarhöldum yfir City Lights-forlaginu sem var kært fyrir brot á velsæmi árið 1957. Rotten Tomatoes gefur myndinni 61%. Myndin er sýnd klukkan 22 núna á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag í Bíó Paradís.

Bræðralag

Svo verður sýnd myndin Broderskap eða Brotherhood sem er dönsk og er fyrsta bíómynd leikstjórans Nicola Donato. Myndin var frumsýnd árið 2009 og fjallar um Lars sem er rekinn úr hernum fyrir að hafa reynt við félaga sinn í hernum. Svo ringlaður og ráðvilltur er þessi ungi maður að hann gengur í nýnasistahreyfingu þar sem aðrir ringlaðir ungir menn þjálfa hálfgerða hermennsku og það sem meira er stunda það að fara saman út á kvöldin að lumbra á hommum. Hann lendir í harkalegum deilum við einn félaga sinn hjá nýnasistunum en með tímanum breytast samskipti þeirra þannig að þau einkennast af gagnkvæmri virðingu og vináttu. Á endanum breytast þau í ástarsamband. Þegar grunur vaknar hjá hinum ný-nasistunum um hvers eðlis þeirra samband sé, eru þeir komnir í stórhættu. Rotten Tomatoes gefur henni 64%. Myndin er sýnd hinn 7. ágúst klukkan 20.00 og 22.00.

Strákastelpa eða stelpustrákur

Þá verður sýnd myndin Tomboy, sem fjallar um unga stúlku, Laure, sem flytur á nýjan stað og kynnir sig fyrir nágrönnum sem strákur að nafni Mickaël. Blekkingin gengur upp en fer að verða flókin þegar ein vinkona hennar, Lisa, verður ástfangin af Mickaël. Gagnrýni Variety Review er vinaleg og Rotten Tomatoes gefur henni 67%. Myndin er sýnd 4. ágúst klukkan 22.00, 5. ágúst klukkan 20.00 og 6. ágúst klukkan 22.00.

Svo er það myndin Skógurinn og trén sem fjallar um Frederick sem er höfuð virðulegrar efnafjölskyldu og síðastliðin sextíu ár hefur hann átt sér leyndarmál. Konan hans og elsti sonur eru þau einu sem vita hið sanna. Samband hans við soninn er erfitt en þegar sonurinn fellur skyndilega frá, finnur Frederick sig knúinn til að koma út úr skápnum og opinbera samkynhneigð sína. Rotten Tomatoes gefur henni 75%. Myndin er sýnd í kvöld og annað kvöld, 2. og 3. ágúst, klukkan 20.00.