Fiskur til vinnslu Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs, taka á móti Baldvin NC 100 á togarabryggjunni á Akureyri, fyrir framan ÚA, í gærkvöldi.
Fiskur til vinnslu Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs, taka á móti Baldvin NC 100 á togarabryggjunni á Akureyri, fyrir framan ÚA, í gærkvöldi. — Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Togarinn Baldvin NC 100 kom til Akureyrar í gærkvöldi með fyrsta aflann til vinnslu í fiskiðjuveri Útgerðarfélags Akureyringa og vinnsla átti að hefjast þar í bítið í dag.

Skapti Hallgrímsson

skapti@mbl.is

Togarinn Baldvin NC 100 kom til Akureyrar í gærkvöldi með fyrsta aflann til vinnslu í fiskiðjuveri Útgerðarfélags Akureyringa og vinnsla átti að hefjast þar í bítið í dag. Samherji keypti reksturinn af Brimi í maí og viðskiptin voru samþykkt af Samkeppniseftirlitinu nú í lok júlí.

Samherji tók í gær formlega við rekstrinum og starfsemi hefst á ný í dag að loknu sumarfríi, í nafni Útgerðarfélags Akureyringa, ÚA.

Samherji keypti fiskvinnslu á Akureyri og Laugum, ísfisktogarana Sólbak EA 1 og Mars RE 205 og veiðiheimildir, samtals 5.900 þorskígildistonn. Baldvin NC kom með fullfermi af þorski sem veiddur var á Grænlandsmiðum. Skipið er gert út af Deutsche Fischfang Union (DFFU) sem er dótturfélag Samherja og skipstjóri er Sigurður Kristjánsson. „Þetta er stór og góður þorskur, meðalviktin er yfir þrjú kíló eftir aðgerð. Áhöfnin á Baldvin NC er sannarlega ánægð og stolt af því að koma með fyrsta farminn til vinnslu hjá ÚA,“ segir Sigurður í tilkynningu frá Samherja. Löndun átti að hefjast um miðnætti og vinnsla með morgninum.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sagði í gærkvöldi að spennandi tímar væru framundan. „Við erum bjartsýn á að samstarfið í þessum stækkandi hóp samstarfsmanna verði farsælt. Okkur stjórnendum Samherja er ljóst hve stóran sess ÚA skipar í huga heimamanna. Við gerum okkur grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir því að taka yfir þennan rekstur og munum leggja okkur fram um að hann gangi sem best í framtíðinni.“

Ferskt og fryst
» Hjá ÚA á Akureyri og á Laugum starfa samtals um 150 manns.
» Í vinnslunni á Akureyri fer fram tæknivædd bolfiskvinnsla þar sem unnar eru ferskar og frystar afurðir fyrir neytendamarkað, aðallega í Evrópu.
» Á Laugum starfrækir ÚA fiskþurrkun.