Þing Kosið um frumvarp.
Þing Kosið um frumvarp.
Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti samkomulag demókrata og repúblikana um hækkun skuldaþaks Bandaríkjanna seint í gærkvöldi en atkvæðagreiðsla í öldungadeild þingsins fer að öllum líkindum fram í dag.

Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti samkomulag demókrata og repúblikana um hækkun skuldaþaks Bandaríkjanna seint í gærkvöldi en atkvæðagreiðsla í öldungadeild þingsins fer að öllum líkindum fram í dag. Frumvarpið, sem einnig kveður á um niðurskurð í útgjöldum ríkisins, þarf að samþykkja í báðum deildum þingsins áður en það verður að lögum.

Tilkynnt var um samkomulagið á sunnudag en frestur til að auka lántökuheimildir ríkissjóðs Bandaríkjanna rennur út í dag. Hljóti frumvarpið samþykki verður komið í veg fyrir greiðslufall. 17