Strípiþvingun.
Norður | |
♠642 | |
♥KD62 | |
♦KD3 | |
♣Á76 |
Vestur | Austur |
♠85 | ♠973 |
♥1087 | ♥954 |
♦ÁG104 | ♦87652 |
♣K1083 | ♣G9 |
Suður | |
♠ÁKDG10 | |
♥ÁG3 | |
♦9 | |
♣D542 |
Duck like a man! skrifaði breski rithöfundurinn S.J. Simon árið 1940 og sú ráðlegging er enn í fullu gildi. Ekki er þó víst að ráðið góða dugi í þetta sinn.
Útspilið er spaði. Sagnhafi aftrompar vörnina og spilar síðan tígli að hjónunum. Ef vestur er kjarklaus og drepur strax fríast hjónin á augabragði og slemman stendur á borðinu. Betri vörn er að dúkka. Í því tilfelli vantar slag og slemman tapast með því að spila laufi að drottningunni. En ef sagnhafi staðsetur laufkónginn í vestur með tígulásnum getur hann náð í tólf slagi með strípiþvingun. Hann klárar trompin og tekur slagina fjóra á hjarta. Þá eru þrjú spil á hendi: ♦D og ♣Á-7 í borði, en ♣D-5-4 heima. Vestur fer væntanlega niður á ♦Á blankan og verður sendur þar inn.