Glæsileg Lara Stone er gift grínistanum breska David Walliams.
Glæsileg Lara Stone er gift grínistanum breska David Walliams. — Reuters
Ofurfyrirsætan Lara Stone þykir ein sú flottasta í bransanum. Þrátt fyrir það er hún ekkert sérstaklega ánægð með sig. Hún segir margt í sínu fari mega betur fara. Stone segir að hún eigi alveg sína slæmu daga og verði reglulega óánægð með sig.

Ofurfyrirsætan Lara Stone þykir ein sú flottasta í bransanum. Þrátt fyrir það er hún ekkert sérstaklega ánægð með sig. Hún segir margt í sínu fari mega betur fara.

Stone segir að hún eigi alveg sína slæmu daga og verði reglulega óánægð með sig. Í dag er hún andlit Tom Ford-snyrtivaranna. „Ég upplifi oft daga þegar mér finnst ekkert varið í mig. Flugferðir fara til dæmis ekkert sérstaklega vel í mig og svo líður mér alltaf illa þegar ég fæ mér fisk og franskar.“

Hún segist þó ekki einblína á hið neikvæða í fari sínu. Þegar hún er spurð um góð ráð segir hún að það skipti miklu máli að sættast við líkamann. „Konur eru aldrei fullkomlega ánægðar með sig, sama hvernig þær líta út. Þess vegna skiptir máli að einblína ekki á neikvæðu hliðarnar því það fer svo illa með sjálfstraustið.“