Í kvöld, þriðjudagskvöldið 2.ágúst, býðst áhugasömum stafgöngukennsla í Viðey hjá Guðnýju Aradóttur. Kennslan er ókeypis.
Í kvöld, þriðjudagskvöldið 2.ágúst, býðst áhugasömum stafgöngukennsla í Viðey hjá Guðnýju Aradóttur. Kennslan er ókeypis. Í tilkynningu segir að stafganga sé holl og góð hreyfing fyrir alla og hafi undanfarin ár rutt sér til rúms sem fyrirtaks heilsurækt og útivist. Sífellt fleiri sækja námskeið í stafgöngu og stunda íþróttina reglulega í kjölfarið. Þeir sem eiga stafi taka þá með, en einnig verður hægt að fá stafi lánaða hjá leiðbeinandanum. Leiðsögn hefst við Viðeyjarstofu kl. 19:30 og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.