Nokkrir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á leið norður frá Egilsstöðum síðdegis í gær eftir unglingalandsmót UMFÍ. Töluverð umferð var á Austfjörðum um helgina að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum og nokkuð um hraðakstur.
Nokkrir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á leið norður frá Egilsstöðum síðdegis í gær eftir unglingalandsmót UMFÍ. Töluverð umferð var á Austfjörðum um helgina að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum og nokkuð um hraðakstur. Miðað við þunga gekk umferðin vel að mestu leyti um allt land. Nær stöðugur straumur lá til höfuðborgarinnar í allan gærdag.