Hollusta Það er gott að búa sér til pestó úr eldrauðum og fallegum tómötum.
Hollusta Það er gott að búa sér til pestó úr eldrauðum og fallegum tómötum.
Hollt og gott mataræði skiptir máli þegar maður stundar mikla hreyfingu og/eða vill ná af sér nokkrum kílóum. Til að fá hugmyndir að heilsusamlegum og góðum mat er sniðugt að kíkja á vefsíðuna eatingwell.com.
Hollt og gott mataræði skiptir máli þegar maður stundar mikla hreyfingu og/eða vill ná af sér nokkrum kílóum. Til að fá hugmyndir að heilsusamlegum og góðum mat er sniðugt að kíkja á vefsíðuna eatingwell.com. Þar er meðal annars að finna handhægt viku matarplan fyrir þá sem vilja létta sig. Því er skipt eftir því hversu margar kaloríur fólk vill innbyrgða á viku hverri. Einnig er á vefsíðunni að finna hugmyndir að hollum morgunmat og uppskriftir að alls konar girnilegum, einföldum og hollum mat. Sumar hverjar miða líka að því að fólk þurfi ekki að eyða of miklu í máltíðina heldur geti borðað vel á fremur ódýran hátt. Á vefsíðunni er einnig að finna fréttir tengdar matvælaiðnaðinum, mataræði og næringarfræði. Forvitnileg vefsíða fyrir þá sem vilja fræðast og finna góðar uppskriftir.