Úrvalsvísitalan lækkaði um 4% í september.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 4% í september.
Heildarviðskipti með hlutabréf í september námu 1.532 milljónum eða 70 milljónum á dag. Þessu til samanburðar nam veltan með hlutabréf í ágúst 2.061 milljón eða 94 milljónum á dag. Þetta kemur fram í yfirliti Kauphallarinnar fyrir septembermánuð.

Mest voru viðskipti með bréf Marels 734 milljónir, bréf Icelandair 574 milljónir og bréf Össurar 119 milljónir. Úrvalsvísitalan lækkaði um 4% milli mánaða og stendur nú í 891 stigi. Landsbankinn átti mest viðskipti á hlutabréfamarkaði, 30%, MP banki með 28% og Íslandsbanki með 14%.

Heildarviðskipti með skuldabréf námu 230 milljörðum í september sem samsvarar 10,4 milljarða veltu á dag (11,8 milljarða velta á dag í ágúst). Mest voru viðskipti með ríkisbréf , 178 milljarðar, en viðskipti með íbúðarbréf námu 47 milljörðum. MP banki var umsvifamestur á skuldabréfamarkaði með 27,9% hlutdeild, Íslandsbanki með 26,1% og Landsbankinn með 19,3%.