Önugur blindur.
Norður | |
♠K109 | |
♥963 | |
♦Á642 | |
♣D87 |
Vestur | Austur |
♠765 | ♠84 |
♥KD108 | ♥Á74 |
♦KG105 | ♦D975 |
♣64 | ♣G1095 |
Suður | |
♠ÁDG32 | |
♥G52 | |
♦3 | |
♣ÁK32 |
Vestur kom út með ♥K og vörnin tók strax þrjá slagi á hjartalitinn. Skipti svo yfir í tígul. Sagnhafi drap og íhugaði málið nokkra hríð, en ákvað loks að taka tvisvar tromp, spila síðan laufinu ofan frá í von um 3-3 legu eða tvíspil með tveimur trompum. Nei, vestur trompaði þriðja laufið og geimið fór niður.
„Þú áttir að vinna þetta spil,“ sagði norður önugur: „Trompa tígul þrisvar heima og fá þannig sex slagi á tromp með öfugum blindum.“ Suður fór yfir spilamennskuna í huganum og sá að þetta var rétt. Hægt var að nota tvær innkomur blinds á spaða til að stinga tígul hátt, fara svo inn á ♣D til að taka síðasta trompið og henda laufi heima. „Allt í lagi,“ játaði suður, „ég gat unnið spilið – en þú þarft ekki að vera svona öfugur og snúinn.“