Glerperlur eftir Nadine.
Glerperlur eftir Nadine.
Á morgun, miðvikudag, mun franska listakonan Nadine kynna glerperlugerð á handverkskaffi í Gerðubergi. Hefst kynningin annað kvöld kl. 20. Nadine hefur getið sér gott orð fyrir gripi úr gleri, fyrst og fremst skartgripi en einnig nytjahluti.

Á morgun, miðvikudag, mun franska listakonan Nadine kynna glerperlugerð á handverkskaffi í Gerðubergi. Hefst kynningin annað kvöld kl. 20.

Nadine hefur getið sér gott orð fyrir gripi úr gleri, fyrst og fremst skartgripi en einnig nytjahluti. Verk hennar eru glerperlur af ýmsu tagi sem hún vinnur frá grunni úr mislitum glerstöngum yfir brennheitum gasloga. Nadine mun útskýra fyrir gestum í hverju glerperlulistin er fólgin og sýna hráefni til glerperlugerðar ásamt sýnishornum af tilbúnum perlum. Aðgangur er ókeypis.