Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki með landsliðinu í knattspyrnu gegn Portúgal á föstudaginn vegna meiðsla. Þá er óvíst með þátttöku Helga Vals Daníelssonar þar sem hann og kona hans eiga von á barni á næstu dögum.

Ólafur Jóhannesson kallaði í gær þá Arnór Smárason frá Esbjerg, Baldur Sigurðsson úr KR og Guðmund Kristjánsson úr Breiðabliki inn í hópinn.

Á sunnudag kom Kjartan Henry Finnbogason úr KR inn í hópinn í staðinn fyrir Alfreð Finnbogason sem meiddist um helgina og í gær varð ljóst að Kolbeinn Sigþórsson yrði ekki heldur með vegna meiðsla. vs@mbl.is