Hjón Seth Rogen og Lauren Miller.
Hjón Seth Rogen og Lauren Miller. — Reuters
Leikarinn gamansami Seth Rogen gekk um helgina að eiga unnustu sína, Lauren Miller, í Sonoma í Kaliforníu. Athöfnin fór fram að hætti gyðinga og sá rabbíni um að gefa parið saman. Fjöldi þekktra leikara var meðal gesta, t.a.m.
Leikarinn gamansami Seth Rogen gekk um helgina að eiga unnustu sína, Lauren Miller, í Sonoma í Kaliforníu. Athöfnin fór fram að hætti gyðinga og sá rabbíni um að gefa parið saman. Fjöldi þekktra leikara var meðal gesta, t.a.m. Paul Rudd, Jonah Hill og leikstjórinn Judd Apatow ásamt eiginkonu sinni Leslie Mann. Að sögn heimildarmanns var mikið hlegið í brúðkaupinu. „Önnur hver setning var brandari og gestirnir gátu ekki stillt sig um að skellihlæja. Þetta var mikil skemmtun frá upphafi til enda.“