Jón Margeir Sverrisson
Jón Margeir Sverrisson
Jón Margeir Sverrisson sundmaður vann í gær til gullverðlauna í 1.500 metra skriðsundi á Global Games, heimsleikum þroskahamlaðra, sem nú standa yfir á Ítalíu.

Jón Margeir Sverrisson sundmaður vann í gær til gullverðlauna í 1.500 metra skriðsundi á Global Games, heimsleikum þroskahamlaðra, sem nú standa yfir á Ítalíu. Íslenski þjóðsöngurinn var því spilaður þegar Jón fékk gullverðlaun sín afhent um miðjan dag í gær.

Þetta eru þriðju verðlaun Jóns Margeirs á leikunum en hann fékk silfur í bæði 100 metra skriðsundi og 400 metra skriðsundi á laugardag og sunnudag. sport@mbl.is