Winehouse Lést í sumar.
Winehouse Lést í sumar. — Reuters
Reg Traviss, sem var kærasti Amy Winehouse heitinnar, hefur sagt frá því að þau skötuhjúin hafi rætt um að gifta sig áður en hún lést og talað saman um hvernig brúðkaupið yrði. „Við höfðum talað um að gifta okkur.
Reg Traviss, sem var kærasti Amy Winehouse heitinnar, hefur sagt frá því að þau skötuhjúin hafi rætt um að gifta sig áður en hún lést og talað saman um hvernig brúðkaupið yrði. „Við höfðum talað um að gifta okkur. Það var ekki búið að ákveða neinar dagsetningar en það var umræðuefni og hafði verið í nokkurn tíma. Það mætti segja að við höfum verið komin langt með að ræða líf okkar saman þegar, allt í einu, hún hvarf.“