Tekið á Þau eru heilmikil átökin í Boot Camp eins og sjá má hér á Kristni í hádegistíma í gær.
Tekið á Þau eru heilmikil átökin í Boot Camp eins og sjá má hér á Kristni í hádegistíma í gær. — Morgunblaðið/Golli
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Kristinn Jóhannsson hljóp nýlega Berlínarmaraþonið og náði góðum árangri þrátt fyrir litla reynslu af hlaupum. Kristinn hljóp í hóp með félögum sínum úr Boot Camp en eiginkona hans tók einnig þátt í maraþoninu.

María Ólafsdóttir

maria@mbl.is

Kristinn Jóhannsson hætti að spila fótbolta í meistaraflokki þegar hann útskrifaðist úr háskóla og flutti til útlanda. Eftir það tók við vanabundið líf vinnandi fjölskylduföður en fyrir um tveimur og hálfu ári byrjaði Kristinn í Boot Camp. Það má að vissu leyti þakka eiginkonu hans sem byrjaði í Boot Camp eftir að þau hjónin eignuðust aðra dóttur sína og á endanum sá Kristinn að það dugði lítið að hanga heima. Kristinn lét þó Boot Camp ekki duga heldur gerði sér líka lítið fyrir og hljóp Berlínarmaraþonið nú í september.

Hlaupin enn á kantinum

„Ég sá strax og ég byrjaði í Boot Camp og fór að bera mig saman við hina að ég var aumari en ekki eins lélegur í hlaupunum. Síðan fór ég að fara í almenningshlaup með Boot Camp en ekki að æfa hlaup ein og sér. Ég fór að hafa gaman af þessu en hlaupin eru þó enn hliðarverkefni. Síðan er mikið verið að mana fólk upp í alls konar vitleysu í Boot Camp og strákarnir sem hafa verið með mér í liði í liðakeppni í þrekmótaröð voru allir búnir að hlaupa maraþon. Þeir hvöttu mig til að hlaupa Laugaveginn sem ég gerði núna í sumar. Ég var sáttur við árangurinn en ég náði að vera í fyrsta sæti í sveitakeppninni og 11. sæti í hlaupinu. Fljótlega eftir það voru nokkrir úr Boot Camp farnir að skrá sig í Berlínarmaraþonið. Ég ákvað að slá til og er heppinn að konan mín hljóp líka og við fengum að upplifa þetta saman,“ segir Kristinn.

Lítill tími til að finna lausn

Kristinn byrjaði að æfa hlaup eftir prógrammi hlaupaþjálfara í mars og lauk síðasta hlaupinu í því nú um helgina en það hlaup var eftirfylgni eftir maraþonið. Hann segir að með réttum undirbúningi hafi ekki verið svo erfitt að hlaupa Laugaveginn, jafnvel þó að vegalengdin sé lengri en í maraþoni. Maraþonhlaupið sem slíkt hafi hins vegar verið erfiðara en hann hélt og reynsluleysið hafi komið honum nokkuð í koll. Hann lauk þó hlaupinu á 3:06:12 sem teljast má mjög góður árangur.

„Þar sem ég hafði ekki mikla hlaupareynslu að baki fann ég að ég hafði lítinn tíma til að finna rétta lausn á þeim vandamálum sem komu upp. Maður hefur einfaldlega ekki möguleika á að bregðast nógu skjótt við og taka réttar ákvarðanir. Í 30 km markinu fékk ég t.d. heiftarlegan magaverk af orkugeli og mér datt ekkert í hug til að losna við verkinn nema bíða eftir að ég fengi vatn. Reynslumeiri hlaupari hefði hins vegar kannski bara verið með vatn á sér til að eiga möguleika á að leysa slíkt vandamál hratt. Það kom mér líka á óvart hvað maður þarf að drekka mikið þegar á hólminn er komið og hversu margir voru í hlaupinu. Ég og félagar mínir tveir úr Boot Camp lögðum saman upp hlaupaplan og náðum að halda því að einhverju leyti. En keppendur voru það margir að það tók miklu meiri orku en maður reiknaði með að komast að og maður þurfti að vera pínulítið frekur,“ segir Kristinn.

Líkamlegur veggur

Kristinn segist hafa verið sáttur við árangurinn þó að hann hafi ætlað sér að ná þriggja tíma markinu. Hann hafði þó verið varaður við að líklega væri það nokkuð bjartsýnt miðað við fyrri reynslu. Hann segist ekki hafa hlaupið á vegg eins og stundum er talað um en telur það hafa bjargað sér hvað hann drakk mikið eftir magaverkinn. Veggurinn sé ekki endilega andlegur heldur frekar að gríðarlega mikið af mjólkursýru losni út í líkamann og drekki fólk ekki nóg byrji vöðvarnir að stífna upp.

Eftirvænting í hópnum

Kristinn segir það hafa verið skemmtilega upplifun að taka þátt í Berlínarmaraþoninu.

„Það er feikilega gaman að vera í hóp þar sem allir eru með sama markmið. Það var mikil eftirvænting í loftinu og allir svo glaðir og spenntir. Svo er magnað að upplifa svona stórt hlaup. Við héldum saman nokkur í hóp en 90 Íslendingar voru skráðir í hlaupið og þarna var meðal annars stór hópur frá Árbæjarskokki. Það ríkti mikil samkennd og ég lærði mikið af þeim sem höfðu hlaupið áður og lærði hluti sem mér hefðu aldrei dottið í hug, bara t.d. eins og að hlaupa ekki í svörtu,“ segir Kristinn.

Langt æfingatímabil að baki

Þó að Kristinn hafi mikla ánægju af hlaupunum segist hann þó ekki ætla að einbeita sér eingöngu að þeim hér eftir heldur halda áfram í Boot Camp og hlaupa í og með. Þannig haldi hann sér í góðu jafnvægi styrks og úthalds og best sé að vera í alhliða góðu formi

„Ég er byrjaður aftur núna í Boot Camp og er að æfa fyrir mót í þrekmótaröðinni sem heitir 5x5 og verður haldið í Vestmannaeyjum um miðjan október. Svo ætla ég til Berlínar aftur á næsta ári og vonandi til Boston 2013. Ætli maður reyni ekki að taka eitt maraþon á ári en það er dálítil kúnst að blanda þessu við vinnu og fjölskyldulíf þar sem undirbúningur fyrir hlaup er miklu tímafrekari en ég hafði ímyndað mér í byrjun,“ segir Kristinn.