Búbót Unnið við loðnufrystingu.
Búbót Unnið við loðnufrystingu. — Morgunblaðið/Sverrir
Kristján Jónsson kjon@mbl.is Loðnuvertíðin mátti hefjast á laugardaginn og lýkur henni væntanlega í lok apríl á næsta ári.

Kristján Jónsson

kjon@mbl.is

Loðnuvertíðin mátti hefjast á laugardaginn og lýkur henni væntanlega í lok apríl á næsta ári. Víkingur AK 100 kannaði stöðuna út af Vestfjörðum þegar á laugardag, að sögn Ingimundar Ingimundarsonar, rekstrarstjóra uppsjávarskipa hjá HB Granda. Slæmt veður kom þó í veg fyrir veiði.

„Hann er kominn inn á Ísafjörð í var, það er haugabræla út af Vestfjörðum,“ sagði Ingimundur. „Það var sæmilegur friður þarna hátt í sólarhring. Þeir sáu reyndar á bakaleiðinni svolítið af loðnutorfum en það var ekkert veður til að eiga við þetta.“ Hann sagði að menn hefðu í gegnum tíðina alltaf byrjað leitina við norðvestanvert landið og fært sig svo austar en þar hefði veðrið ekki heldur verið nógu gott.

Víkingur er um 1.300 tonna skip og um 15 manns eru í áhöfn. Að sögn Ingimundar verður hann ekki gerður út á loðnu nema í tvær til þrjár vikur, þar sem skipið er ekki búið kæli- og frystitækjum, öfugt við hin þrjú skipin sem fyrirtækið mun að líkindum senda á loðnu. Þau eru nú á síld og makríl. Lýsisverðið er gott, verðlag á mjöli hefur lækkað nokkuð en er samt tiltölulega gott, segir Ingimundur.

Upphafsheimild ráðherra um 180 þúsund tonn

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf snemma í september út upphafsheimild til íslenskra veiðiskipa á komandi loðnuvertíð til veiða á 181.269 lestum af loðnu. Tekið er mið af tilmælum Hafrannsóknastofnunar þegar aflaheimildir íslenskra skipa eru reiknaðar út frá helmingi af ráðlögðum upphafskvóta vertíðarinnar sem er 732.000 lestir.

Á síðasta vetri námu loðnuheimildir innan lögsögunnar samtals 325 þúsund tonnum, þar af fóru um 73 þúsund tonn til erlendra skipa samkvæmt milliríkjasamningum. Er líklegt að hluti íslenskra skipa af heildinni verði um hálf milljón tonna.

„Varlega áætlað og miðað við hagstæða samsetningu í bræðslu aflans, frystingar og hrognavinnslu má reikna með að heildarverðmæti loðnunnar úr sjó verði 20 til 30 milljarðar króna,“ segir á vef ráðuneytisins.