Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest AAA-lánshæfiseinkunn breska ríkisins og segir að horfur fyrir einkunnina séu stöðugar. Þetta felur í sér, að S&P sér ekki fyrir sér, að einkunninni verði breytt á næstunni.
Alþjóðlega
matsfyrirtækið
Standard & Poor's hefur staðfest AAA-lánshæfiseinkunn
breska
ríkisins og segir að horfur fyrir einkunnina séu stöðugar. Þetta felur í sér, að S&P sér ekki fyrir sér, að einkunninni verði breytt á næstunni. Hins vegar segir fyrirtækið, að
hugsanlega
kunni staðan að breytast ef bresk stjórnvöld standa ekki við áform um að draga úr opinberri skuldasöfnun.