Óboðlegt Young klikkaði á því sem ekki mátti klikka á, sjálfum söngnum.
Óboðlegt Young klikkaði á því sem ekki mátti klikka á, sjálfum söngnum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Paul Young í Hörpu, þriðjudaginn 4. október.

Það er ekki margt fallegt sem maður getur sett niður á blað eftir að hafa farið á tónleika með 80's-hetjunni Paul Young í Eldborgarsal Hörpu. Tónleikarnir hófust á skemmtilegu og lofandi forspili, hljómsveitarmeðlimirnir tíndust inn á sviðið og síðastur á svið var Paul. Fyrsta lag kvöldsins var Joy Divison-slagarinn „Love will tear us a part“ og verð ég að viðurkenna að það fór ánægjulegur fiðringur um mann, en það breyttist fljótt í kjánahroll. Rödd og raddsvið Pauls hefur mátt muna sinn fífil fegurri, því hann bókstaflega hékk í tónunum, var falskur og reyndi ítrekað að bjarga sér fyrir horn með falsettum og oft og iðulega dró danska bakraddasöngkonan hann í land og bjargaði því sem bjargað varð. Vonaði maður að raddstyrkur Youngs mynd eflast eftir því sem liði á tónleikana, en það gerðist ekki. Um miðja tónleikana stigu hljómsveitarmenn fram á sviðið og fluttu þrjú lög í akústík-útgáfum og það var helst þá að stemningin náði einhverju marki. „All shook up“ Elvis Presley-slagarinn var fluttur í blúsaðri útgáfu. „Don't dream its over“ sem Paul flutti á Nelson Mandela-tónleikunum 1991 og loks nýtt lag frá Paul sem fjallar um hvernig á að táldraga giftar konur.

Undir lok tónleikanna var Paul greinilega kominn í góðan fíling því hann hljóp út um allan sal og heilsaði upp á fólk í laginu „Come back and stay“ og lokalag kvöldsins var „Every time you go away“ og lagðist Paul á gólfið og söng til æstra kvenna á fremsta bekk. Paul býr yfir þónokkrum persónutöfrum og þegar hann var á spjalli við salinn lifnaði yfir öllum og maður fann smátöfra myndast.

Ég verð bara að segja að að loknum tónleikum fannst mér ég svolítið svikinn og svekktur. Þessi glæsilega umgjörð sem Eldborg er og glæstur ferill Youngs hafði allt til að bera að skapa eftirminnileg kvöld. „Raddleysi“ Pauls er bara það mikið að það er ekki boðlegt að selja inn á tónleika hans dýrum dómum. Maður spyr sig líka hvers vegna vinir eða vandamenn hans hafi ekki haft orð á þessu vandamáli við hann?

Viðbrögð á Fésbókinni

Eins og sjá má í dómnum hér til hliðar reyndist rödd Young ekki upp á marga fiska og er rýnir ekki einn um þá skoðun. Fésbókin reynist oft vettvangurinn þar sem fólk blæs út um hin ýmsu málefni. Seint á þriðjudagskvöldi hrúguðust inn athugasemdir frá tónleikagestum og flestir þeirra ósáttir.

Arnar Halldórsson

„Halli, hér er dómur frá einum sem fór á tónleikana: „Sá Paul Young í gær í Hörpu! ég held að hann hafi ekki fundið röddina aftur eftir að hann missti hana um árið kallgreyið.“

Halli Civelek

„Þetta er svo lélegt að ég var fyrst alltof meðvirkur til að pósta, en gad dem! Paul Young...hvar hafa dagar lífs þíns blómum þínum glatað, eða eitthvað svoleiðis? Og segðu bara svarið, plís ekki syngja það.“

Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas

„Greyið þú og mamma og pabbi sem fóru á þetta – fengu einhverja el chippó-miða last minute, greyin þau fá þennan tíma aldrei aftur!!“

Friðjón F. Hermannsson

Höf.: Friðjón F. Hermannsson