Kaija Saariaho tónskáld.
Kaija Saariaho tónskáld.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Norrænir músíkdagar er elsta hátíð sinnar tegundar í heiminum, en stofnað var til hennar árið 1888. Það er því sérlega skemmtilegt að hún skuli nú haldin í yngsta tónlistarhúsi heims, þ.e.

Silja Björk Huldudóttir

silja@mbl.is

„Norrænir músíkdagar er elsta hátíð sinnar tegundar í heiminum, en stofnað var til hennar árið 1888. Það er því sérlega skemmtilegt að hún skuli nú haldin í yngsta tónlistarhúsi heims, þ.e. Hörpunni,“ segir Pétur Jónasson, listrænn stjórnandi Norrænna Músíkdaga, en hátíðin hefst í dag og lýkur á sunnudagskvöld. Alls verða fjórtán tónleikar á hátíðinni, allt frá sinfóníutónleikum til kammer-, kór-, raf- og barnatónleika. Segist Pétur búast við góðri aðsókn enda sýni reynslan af t.d. Myrkum músíkdögum að aðsóknin aukist ár frá ári. „Það er sístækkandi hópur fólks sem hefur víðan sjóndeildarhring og vill heyra eitthvað nýtt,“ segir Pétur og bendir á að öll eigi verkin á hátíðinni það sameiginlegt að vera yngri en tíu ára. „Hátíðin sýnir þannig það nýjasta og framsæknasta á öllum Norðurlöndunum á hverju ári.“

Hátíðin var síðast haldin hérlendis fyrir fimm árum, en Norðurlöndin skiptast á að halda hátíðina. Tónskáldafélag Íslands er aðalskipuleggjandi hátíðarinnar í nánu samstarfi við Norræna tónskáldaráðið.

Valið úr rúmlega 400 innsendum tónverkum

Að sögn Péturs munu hundrað og sextíu listamenn flytja rúmlega sextíu tónverk eftir fleiri en fimmtíu norræn tónskáld hátíðinni í ár og verða flest tónskáldin viðstödd þegar verkin eru flutt. „Ný kynslóð tónskálda og tónlistarfólks verður áberandi á hátíðinni, m.a. ungt fólk sem hefur haslað sér völl á sviðum sem hingað til hafa þótt ósamrýmanleg, s.s. klassísk nútímatónlist, djass og popptónlist,“ segir Pétur. Tekur hann fram að verkefnavalsnefnd hafi staðið í ströngu við að velja inn verk á hátíðina því alls voru send inn rúmlega 400 verk eftir fleiri en 350 tónskáld og hafa umsóknir aldrei verið fleiri. „Svo skemmtilega vill til að aldrei hafa verið send inn fleiri sinfónísk verk,“ segir Pétur og telur ljóst að það skýrist af staðsetningu hátíðarinnar í Hörpu og því hversu hróður Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafi borist víða.

Meðal viðburða á hátíðinni má nefna tónleika í Norðurljósum annað kvöld kl. 19.00 þar sem 90 tónlistarnemar úr þremur tónlistarskólum taka þátt í flutningi á nýju tónverki eftir Østen Mikal Ore sem nefnist Velodrom.

Fjöldi þekktra flytjenda

Á laugardagskvöld verða tónleikar í Eldborg kl. 19.00 þar sem m.a. verður frumflutt tónverk og hljóðgjörningar eftir Ragnhildi Gísladóttur, Hafdísi Bjarnadóttur og Sólrúnu Sumarliðadóttur. Á sömu tónleikum mun Víkingur Heiðar Ólafsson frumflytja píanókonsert eftir Hauk Tómasson. Af öðrum tónskáldum sem eiga verk á hátíðinni má nefna Kaija Saariaho, Peter Bruun sem hlaut Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2008, en Haukur hlaut þau árið 2004, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Hugi Guðmundsson og Þóra Marteinsdóttir,

Á meðal flytjenda eru Caput-hópurinn, Kammersveit Reykjavíkur og Aldubáran Sinfonietta frá Færeyjum og fjöldinn allur af einleikurum s.s. Einar Jóhannesson á klarínettu, Eva Alkula á kantele, Tomoya Nakai á koto, Hélène Navasse á bassaflautu, Hrafnkell Orri Egilsson á selló, Tui Hirv sópransöngkona, og Una Sveinbjarnardóttir á fiðlu.

Hátíðinni lýkur með lokatónleikum í Norðurljósum á sunnudag kl. 16.00 þar sem Kammersveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Bernharðs Wilkinsonar en að tónleikum loknum verður siglt út í Viðey þar sem tendrað verður á friðarsúlu Yoko Ono.

Allar nánari upplýsingar um hátíðina, þ.e. dagskrá, tónleika, ráðstefnur og miðasölu má nálgast á: www.nordicmusicdays.is.