Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel unnu sinn sjöunda deildasigur í röð í gærkvöldi þegar liðið skellti Balingen 31:21 á útivelli. Kiel er í efsta sæti deildarinnar enda hefur liðið unnið alla sjö leiki sína til þessa.
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel unnu sinn sjöunda deildasigur í röð í gærkvöldi þegar liðið skellti Balingen 31:21 á útivelli. Kiel er í efsta sæti deildarinnar enda hefur liðið unnið alla sjö leiki sína til þessa. Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson gat ekki leikið með Kiel vegna meiðsla.
Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson skoraði sex mörk fyrir Füchse Berlin sem sigraði TuS-N-Lübbecke 33:26. Alexander var næstmarkahæstur í Berlínarliðinu sem leikur undir stjórn Dags Sigurðssonar. kris@mbl.is