Afar seinheppinn 23 ára Bandaríkjamaður var á ferð á bíl sínum um daginn í Tennessee þegar skammbyssa hans byrjaði að renna undan farþegasætinu. Hann teygði sig í byssuna á ferð, tók við það óvart um gikk hennar og við það hljóp skot úr byssunni og hafnaði í hægra læri byssueigandans.
Byssukúlan fór í gegnum lærið og endaði í vinstra fæti hans rétt fyrir ofan ökkla. Þetta kallar maður að skjóta sig í báða fætur, en sjaldgæfara er að það gerist á ferð. Ekki kom það lögreglumönnum á óvart að finna talsvert magn fíkniefna í bíl mannsins eftir óhappið.
finnurorri@gmail.com