Innblástur Chevrolet Cruze bílar í löngum röðum. Mögulegur efniviður í stuttmynd?
Innblástur Chevrolet Cruze bílar í löngum röðum. Mögulegur efniviður í stuttmynd? — Reuters
Bílaframleiðandinn Chevrolet og kvikmyndafyrirtækið MOFILM kalla á kvikmyndagerðarmenn um allan heim til að búa til stuttmynd sem fangar andann sem býr í bílaferðalaginu.

Bílaframleiðandinn Chevrolet og kvikmyndafyrirtækið MOFILM kalla á kvikmyndagerðarmenn um allan heim til að búa til stuttmynd sem fangar andann sem býr í bílaferðalaginu. Besta stuttmyndin mun síðan verða sýnd sem 30 sekúndna auglýsing á einum stærsta íþróttaviðburði Bandaríkjanna, Super Bowl XLVI 2012.

Joel Ewanick, markaðsstjóri General Motors, segir að góð ferðasaga samtvinni bæði ævintýrið og hinn frjálsa anda sem fylgir því að ferðast um nýjar og óþekktar slóðir. Þeim sem hafa í hyggju að taka þátt er bent á að leita sér nánari upplýsinga á síðunni www.Mofilm.com/ChevroletRoute66.

Tímafrestur til að skila inn stuttmynd er til 1. desember á þessu ári.