— Morgunblaðið/Arnaldur
Fjórir karlar og ein kona voru handtekin í lok síðustu viku í aðgerðum lögreglu tengdum fíkniefnaviðskiptum. Samtals var lagt hald á um hálft kg af ætluðu kókaíni.

Fjórir karlar og ein kona voru handtekin í lok síðustu viku í aðgerðum lögreglu tengdum fíkniefnaviðskiptum. Samtals var lagt hald á um hálft kg af ætluðu kókaíni.

Einn fimmmenninganna er erlendur karlmaður á fimmtugsaldri og var hann úrskurðaður í farbann til 28. október. Hinum var sleppt eftir yfirheyrslur. Rannsókn málsins heldur áfram, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.