Stígvélaði kötturinn úr Shrek-teiknimyndunum er nýjasta aukapersónan sem hlotnast sá heiður að fá gerða um sig heila kvikmynd.

Stígvélaði kötturinn úr Shrek-teiknimyndunum er nýjasta aukapersónan sem hlotnast sá heiður að fá gerða um sig heila kvikmynd.

Það er sem fyrr Antonio Banderas sem ljær kisanum stígvélaða sína hljómþýðu rödd og hann var því að sjálfsögðu viðstaddur viðhafnarfrumsýningu á teiknimyndinni Stígvélaði kötturinn á dögunum.

Frumsýningin fór fram á 59. kvikmyndahátíðinni í San Sebastian á Spáni og voru þessi forláta risa-stígvél búin til af því tilefni.