Táknið burt Helgileikur á sviði í skóla á Seltjarnarnesi. Mikil andstaða var meðal almennings við hugmyndir um að hrófla við litlu jólunum í skólum landsins, áfram má syngja sálma en krossinn og biblían eru úti í kuldanum.
Táknið burt Helgileikur á sviði í skóla á Seltjarnarnesi. Mikil andstaða var meðal almennings við hugmyndir um að hrófla við litlu jólunum í skólum landsins, áfram má syngja sálma en krossinn og biblían eru úti í kuldanum. — Morgunblaðið/Ernir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Kristján Jónsson kjon@mbl.is Niðurstaða er loks komin í deilu sem staðið hafa í rúmt ár um róttækar tillögur Mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um nýjar reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög.

Baksvið

Kristján Jónsson

kjon@mbl.is

Niðurstaða er loks komin í deilu sem staðið hafa í rúmt ár um róttækar tillögur Mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um nýjar reglur um samskipti skóla við trúar- og lífsskoðunarfélög. Borgarstjórn samþykkti í vikunni með 10 atkvæðum gegn fimm atkvæðum sjálfstæðismanna reglur sem ganga nokkru skemmra. Þær breyta samt á margvíslegan hátt hefðbundnum samskiptum þessara aðila við trúfélög.

Í reglunum sem samþykktar voru er rætt um að tryggja öllum börnum rétt til „þátttöku í skólastarfi óháð þeirri trúar- eða lífsskoðun sem þau alast upp við. Upplýst fræðsla um kristna trú, trúarbrögð heimsins, lífsskoðanir, siðfræði, heimspeki og íslenska menningu er mikilvæg í öllu starfi skóla borgarinnar. Trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana á þar ekki heima“.

Haldið er fast við ákvæði í upprunalegu tillögunum um að banna dreifingu í skóla á „boðandi efni“ af öllu tagi, þ.ám. bókum, sem hlýtur að merkja að Gídeonsfélagið má ekki sýna sig í skólunum með Nýja testamentið til fermingarbarna.

Úlfaþytur í fyrra

Fyrstu tillögurnar, sem bornar voru fram af meirihluta ráðsins í fyrra, vöktu úlfaþyt. Á annað hundrað tölvuskeyti bárust til Mannréttindaráðsins á viku hverri til að mótmæla hugmyndunum.

Fjöldi presta reis upp gegn þeim og sama var að segja um talsmenn foreldrafélaga sem sögðu að ekki hefði verið haft neitt samráð við þau. Hægt væri að endurskoða með mildari hætti reglurnar um tengsl leik- og grunnskóla og frístundaheimila við áðurnefndar stofnanir og félög, koma til móts við breyttar aðstæður og tryggja betur réttindi annarra en kristinna og trúleysingja án þess að ganga fram með jafnróttækum hætti. Ekki mætti fleygja umsvifalaust mörg hundruð ára hefðum. Sjálfstæðismenn tóku mjög undir þessa gagnrýni.

Í greinargerð með upprunalegu róttæku tillögunum sagði meirihlutinn m.a. að „fjölmörg umkvörtunarefni“ hefðu borist frá foreldrum barna í leik- og grunnskólum vegna meints trúboðs í þessum stofnunum. Síðar kom fram að á tveimur árum hefðu alls 50-60 einstaklingsmál af þessum toga ratað á borð mannréttindastjóra, Önnu Kristinsdóttur.

Prestar geta verið fagaðilar

Fljótlega voru gerðar breytingar á upprunalegu hugmyndunum. „Því er beint til stofnana borgarinnar sem hafa starfandi áfallaráð að tryggt sé að fagaðilar komi að sálrænum áföllum í stað þess að leitað sé til trúar- og lífsskoðunarfélaga,“ sagði í þeim. Nú var lagt til að prestum væri leyft að veita áfallahjálp þegar óskað væri eftir fagaðila til stuðnings.

„Þetta kom mér á óvart,“ sagði Líf Magneudóttir, fulltrúi VG, sem var ósátt og sagðist hafa haldið að eining væri um upprunalegu tillöguna.

Fleira breyttist. „Ferðir í bænahús trúar- eða lífsskoðunarfélaga, bænahald, sálmasöngur og listsköpun í trúarlegum tilgangi er hluti af trúaruppeldi foreldra en ekki hlutverk starfsmanna borgarinnar. Slík starfsemi á ekki heima í starfi með börnum í opinberum skólum. Kirkjuferðir skulu ekki farnar á starfstíma frístundaheimila og leik- og grunnskóla,“ sagði í fyrstu tillögunum en tekið fram að ekki væri verið að hrófla við öðrum jólaundirbúningi í skólum.

Nú er búið að leyfa jólasálmana á ný. Og skólastjórar fá leyfi til að bjóða fulltrúum trúar- eða lífsskoðunarhópa að heimsækja „kennslustundir í trúarbragðafræði/lífsleikni sem lið í fræðslu um trú og lífsskoðanir... skal heimsóknin þá fara fram undir handleiðslu kennara og vera innan ramma námsefnisins“.

Spurt&Svarað

Verða jólasálmarnir framvegis bannaðir í skólunum?

Nei, tekið er skýrt fram að sígildir söngvar, dansar, leikir og handíðir sem teljast hluti af gamalgrónum hátíðum skuli halda sessi sínum. „Jólasálmar og helgileikir tengdir jólunum falla hér undir.“

Má ekki framar dreifa biblíunni í skólum borgarinnar?

Nei, ekki er hægt að skilja

reglurnar öðruvísi en svo að það sé alveg bannað. Allt svonefnt boðandi efni sem notað er í kristnu trúboði, krossar, bækur, prentmyndir og kvikmyndir sem boða kristna trú verður bannað eins og slíkt efni frá öðrum trúar- og lífsskoðunarfélögum.

Má prestur eða kennari lesa bænir með börnunum?

Nei, svo virðist ekki vera og sagt er að þess verði gætt að nemendur sem fái heimsókn presta í kennslustofuna „fylgist með en séu ekki þátttakendur í helgisiðum og athöfnum og að þær séu ekki vettvangur fyrir innrætingu eða dreifingu á boðandi efni“.

Hvað ef deilt verður um túlkun á nýju lögunum?

Ljóst er að varla verður alltaf eining um túlkun nýju reglnanna og kemur þá til kasta Skóla- og frístundasviðs. Það á að skipa úrskurðarnefnd sem auk þess á að leggja mat á reynsluna af reglunum innan árs.

INNANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ

Frumvarp í bígerð

Fram hefur komið að í innanríkisráðuneytinu er nú unnið að frumvarpi til breytinga á lögum um skráð trúfélög auk breytinga á öðrum lögum eftir því sem við á, með það að markmiði að tryggja jafnræði lífsskoðunarfélaga, þ.e. veraldlegra og trúarlegra. Hafa m.a. verið skoðuð gögn frá Siðmennt en systurfélag þess í Noregi er viðurkennt sem ígildi trúfélags.

Með hugtakinu lífsskoðunarfélag er átt við félag sem fjallar um siðferði, þekkingarfræði (hverju maður trúir og hvers vegna) og veitir þjónustu við félagslegar athafnir fjölskyldna. Slík félög má flokka í annaðhvort trúarleg, þ.e. trúfélög, eða veraldleg, og svo í mismunandi stefnur þar undir.