Rapace Frábær í Svínastíunni.
Rapace Frábær í Svínastíunni.
Nú þegar kvikmyndahátíðin RIFF er á enda fer almenn dagskrá í Bíó Paradísar aftur af stað og um að gera að vera vakandi fyrir þeim góðu kvikmyndum sem þar eru sýndar.
Nú þegar kvikmyndahátíðin RIFF er á enda fer almenn dagskrá í Bíó Paradísar aftur af stað og um að gera að vera vakandi fyrir þeim góðu kvikmyndum sem þar eru sýndar. Hin áhrifamikla kvikmynd Svínastían, sem var opnunarmynd RIFF og skartar Nomi Rapace í aðalhlutverki verður sýnd áfram. Íslensku myndirnar Jón og séra Jón, Á annan veg og heimildamyndin Thors saga, eru einnig sýndar í Bíó Paradís og sama er að segja um heimildarmyndina um RAXA ljósmyndara, Andlit norðursins. Allt myndir sem enginn má missa af. Kaffihúsið á staðnum er líka fínt.