Dalai Lama verður að aflýsa ferð sinni til Suður-Afríku þangað sem honum var boðið til afmælisfagnaðar biskupsins Desmond Tutu. Fékk hann ekki vegabréfsáritun til landsins.
Dalai Lama verður að aflýsa ferð sinni til Suður-Afríku þangað sem honum var boðið til afmælisfagnaðar biskupsins Desmond Tutu. Fékk hann ekki vegabréfsáritun til landsins. Fréttaskýrendur telja að skýringin sé sú að stjórnvöld í Suður-Afríku hafi ekki viljað styggja bandamenn sína í Kína með því að veita Dalai Lama áritun. Kína er helsta viðskiptaland Suður-Afríku en Kínverjar hafa oftsinnis gagnrýnt þá þjóðarleiðtoga sem tekið hafa á móti Dalai Lama.