Stefán Gíslason
Stefán Gíslason
Per Mathisen yfirmaður knattspyrnumála hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lilleström sagði við norska fjölmiðla í gær að félagið vildi semja til frambúðar við Stefán Gíslason. Stefán gekk að nýju til liðs við félagið á dögunum.

Per Mathisen yfirmaður knattspyrnumála hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lilleström sagði við norska fjölmiðla í gær að félagið vildi semja til frambúðar við Stefán Gíslason. Stefán gekk að nýju til liðs við félagið á dögunum. Hann samdi við liðið út leiktíðina og fór beint inn í byrjunarliðið í leiknum á móti Rosenborg um síðustu helgi. Illa hefur gengið hjá liði Lilleström en liðið hefur tapað sex leikjum í röð í deildinni. Tveir aðrir Íslendingar eru á mála hjá liðinu, Stefán Logi Magnússon og Björn Bergmann Sigurðarson.

gummih@mbl.is