Vegna meiðsla hafa handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson þurft að draga sig til baka frá viðureign Atletico Madrid og Chekhovskie Medvedi sem fram fer í Madrid í Meistaradeild Evrópu á sunnudaginn.
Vegna meiðsla hafa handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson þurft að draga sig til baka frá viðureign Atletico Madrid og Chekhovskie Medvedi sem fram fer í Madrid í Meistaradeild Evrópu á sunnudaginn. Óvíst er hvort meiðslin hafi áhrif á möguleika þeirra til þess að vera eitt 12 para sem valin verða til þess að dæma á EM í Serbíu í janúar. Þeir voru í hópi 15 para sem Handknattleikssamband Evrópu tilkynnti að ættu möguleika á að dæma.