Kúrekar Sölumenn Ingvars Helgasonar setja upp kúrekahatta og ætla að selja nýja bíla eins og enginn sé morgundagurinn.
Kúrekar Sölumenn Ingvars Helgasonar setja upp kúrekahatta og ætla að selja nýja bíla eins og enginn sé morgundagurinn. — Morgunblaðið/Golli
Ingvar Helgason hf. og B&L fara nú um helgina af stað með verkefnið Bíladíla og munu bjóða viðskiptavinum sínum kaup á nýjum bílum á betri kjörum en áður.

Kjörin verða sniðin að aðstæðum hverju sinni en markmiðið er að gefa sem flestum kost á að festa sér nýjan bíl. Verkefnið stendur út október.

„Þrátt fyrir rólega bílasölu nú í erfiðu efnahagsástandi höfum við haldið okkar hlut og teljum árangurinn ágætan. Erum með 18% markaðshlutdeild og teljum það vera mjög gott,“ segir Rúnar H. Bridde, sölustjóri hjá Ingvari Helgasyni, í samtali við Morgunblaðið.

„Við leggjum okkur fram um að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu og vera til taks með lausnir sem henta. Við seldum öllum helstu bílaleigunum töluvert magn bíla af mörgum gerðum og stærðum í vor og höfum lagt okkur fram um að þjónusta þessa mikilvægu viðskiptavini okkar eins vel og við kunnum. Fólk og fyrirtæki hafa líka kunnað að meta þjónustu okkar og úrval sparneytinna bíla sem við höfum á boðstólum,“ segir Rúnar sem bætir við að þær gerðir bíla sem best seljast hjá Ingvari Helgasyni og B&L eru Nissan, Hyundai, BMW og Isuzu og verða þær nú á góðum kjörum.

Setjum markið hátt

„Við erum með dísilbíla af millistærð sem eyða allt niður í 3,7 lítra á hundraðið og kosta á bilinu þrjár til fimm milljónir og einnig fjórhjóladrifna lúxusbíla sem eyða niður undir 5 lítrum af dísilolíu á hverja 100 kílómetra og því ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi og getu. Við setjum markið hátt fyrir restina af árinu og ætlum okkur bæta okkar hlut frekar en hitt og til þess sláum við nú í með svokallaða Bíladíladaga og bjóðum viðskiptavinum okkar upp á að kaupa nýjan bíl á góðum kjörum,“ segir Rúnar H. Bridde.

sbs@mbl.is