Theódór Júlíusson í Eldfjalli.
Theódór Júlíusson í Eldfjalli.
Nýtt kvikmyndahús verður opnað í kvöld á Siglufirði og verður kvikmyndin Eldfjall opnunarmynd þess. Leikstjóri myndarinnar, Rúnar Rúnarsson og aðalleikari hennar, Theódór Júlíusson, verða viðstaddir opnunina en Siglufjörður er heimabær Theódórs.

Nýtt kvikmyndahús verður opnað í kvöld á Siglufirði og verður kvikmyndin Eldfjall opnunarmynd þess. Leikstjóri myndarinnar, Rúnar Rúnarsson og aðalleikari hennar, Theódór Júlíusson, verða viðstaddir opnunina en Siglufjörður er heimabær Theódórs. Sýningar á Eldfjalli í hinu nýja kvikmyndahúsi verða í kvöld kl. 21, annað kvöld á sama tíma og á sunnudag kl. 20.

Eldfjall er fyrsta kvikmynd Rúnars í fullri lengd og jafnframt framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2012. Hún hefur verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim.