Fjölmenni Árstíðir á tónlistarhátíðinni Bardentreffen í Nürnberg í Þýskalandi í sumar.
Fjölmenni Árstíðir á tónlistarhátíðinni Bardentreffen í Nürnberg í Þýskalandi í sumar. — Ljósmynd/Roland Hensel
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Árstíðir sendi í vikunni frá sér aðra hljóðversskífu sína, Svefns og vöku skil, en sú fyrsta kom út fyrir tveimur árum og bar titil hljómsveitarinnar sem þá var tríó.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Hljómsveitin Árstíðir sendi í vikunni frá sér aðra hljóðversskífu sína, Svefns og vöku skil, en sú fyrsta kom út fyrir tveimur árum og bar titil hljómsveitarinnar sem þá var tríó. Nú er hún hins vegar sextett og tónlistin hefur breyst í samræmi við það, eins og heyra má á plötunni nýju. Á fyrstu plötunni sveif andi Simons og Garfunkels yfir vötnum en nú virðist hann á undanhaldi.

Blaðamaður bar þær vangaveltur undir Ragnar Ólafsson, einn af upphafsmönnum hljómsveitarinnar, í gær. Ragnar segir tónlist Árstíða vissulega hafa verið einfaldari og poppaðri þegar meðlimir voru þrír en eftir að fleiri bættust í hópinn og hljóðfærum fjölgaði, þ.e. fiðla, píanó og selló, hafi sándið stækkað og blandan orðið meira spennandi.

„Við vorum með fleiri möguleika og að auki syngja allir, við erum með sex söngvara í bandinu,“ segir Ragnar. „Það sem við höfum verið að gera síðustu tvö ár er að experimenta með þetta sánd og útsetja lögin aftur og aftur,“ segir Ragnar um plötuna nýju. Hljómsveitin hafi verið að fikra sig áfram í hinum nýja hljóðheimi og platan sé mikið unnin fyrir vikið, spáð í hvern tón. Þá hafi upptökustjórn Ólafs Arnalds haft mikið að segja um útkomuna. „Hann þekkir sándið okkar og er náttúrlega mjög fagmannlegur tónlistarmaður, vissi nákvæmlega hvað okkar plata þurfti til að okkar sýn myndi verða að veruleika,“ segir Ragnar.

Marka sér eigin stefnu

– Það er ekki lengur hægt að líkja ykkur við Simon og Garfunkel eða Crosby, Stills og Nash?

„Nei, þó að þetta hafi byrjað svolítið í þeim anda urðum við svolítið þreyttir á því að fólk var alltaf að kalla CSN og Simon og Garfunkel þegar það heyrði raddaðan söng.

Við höfum markvisst verið að marka okkar eigin stefnu og ég er mest stoltur af því, við þessa plötu, að sándið er eitthvað sem við erum búnir að rata á sjálfir. Við höfum ekki líkt eftir neinu öðru bandi,“ segir Ragnar. Hljómsveitin er nýkomin heim eftir þriggja vikna tónlistarferðalag um Rússland og Búlgaríu og segir Ragnar það hafa verið vel heppnaða ferð. Í Rússlandi hafi verið uppselt á meira en níu tónleika og spilað á fínum stöðum og stórum. „400-500 manna hallir,“ segir Ragnar um tónleikastaðina. Árstíðir túraði með rússnesku bandi, Iamthemorning, sem hefur á að skipa selló-, víólu- og fiðluleikara og léku þeir með Árstíðum lög af nýju plötunni á nokkrum tónleikanna.

Spurður að því hvort Rússar hafi þekkt Árstíðir fyrir segir Ragnar að hljómsveitin sé með rússneskan umboðsmann sem hafi unnið mikið með rússneskum menningarsamtökum sem áhuga hafi á Íslandi og íslenskri menningu. Umboðsmaðurinn hafi séð um að „plögga“ hljómsveitina í Rússlandi og tónleikagestir verið iðnir við að kaupa diska sveitarinnar.

Hvað næstu tónleika varðar þá kemur hljómsveitin fram á Iceland Airwaves, í salnum Kaldalóni í Hörpu og mun svo halda útgáfutónleika vegna plötunnar í Hofi á Akureyri, 11. nóvember og í Salnum í Kópavogi 19. nóvember. Þá eru fleiri tónleikaferðir fyrirhugaðar og líklegt að næsta sumar verði mikið hátíðasumar hjá Árstíðum. Hún mun m.a. leika á Colours of Ostrava í Tékklandi, stærstu alþjóðlegu tónlistarhátíðinni þar í landi.