Renault Hjá Ingvari Helgasyni hf. hefur sendibíllinn Renault Master selst ágætlega undanfarið, að sögn Lofts Ágústssonar markaðsstjóra fyrirtækisins. Bílar þessarar gerðar eru sparneytnir sem kemur sér vel í dag.
Renault Hjá Ingvari Helgasyni hf. hefur sendibíllinn Renault Master selst ágætlega undanfarið, að sögn Lofts Ágústssonar markaðsstjóra fyrirtækisins. Bílar þessarar gerðar eru sparneytnir sem kemur sér vel í dag. — Morgunblaðið/Sigurgeir S
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Subaru XV er með nýja og endurbætta bensínvél er nýjasta frá hinum japanska framleiðanda. Pantanir farnar að berast til Ingvars Helgasonar. Renault Master fær góðar viðtökur í atvinnulífinu.

Þessi nýjasta gerð Subaru er væntanleg til landsins eftir áramót en við erum byrjuð að panta bíla og höfum þegar orðið vör við jákvæð viðbrögð frá þeim sem fylgjast með og hafa lesið um bílinn í erlendum blöðum,“ sagði Rúnar H. Bridde, sölustjóri Subaru.

Subaru XV er með nýja og endurbætta 2,0 lítra bensínvél sem er 148 hestöfl og sögð vera sú sparneytnasta í sínum stærðarflokki eða nálægt 5,5 lítrum á hverja 100 km eins og kemur fram í netgrein breska Auto Express-bílablaðsins. Subaru XV verður einnig hægt að fá með Boxer-dísilvél og beinskiptingu og þá er hann sagður eyða 4,7 lítrum á hverja 100 km skv. sömu heimildum.

Með sítengt aldrif

Nýi bíllinn er fjórhjóladrifinn með þverliggjandi Boxer-vél og sítengt aldrif eins og tíðkast hefur í Subaru í fjölda ára.

Bíllinn er með nýju stiglausu CVT-sjálfskiptingunni sem hefur verið endurhönnuð sérstaklega fyrir XV-bílinn með góða eldneytisnýtingu leiðarljósi. Sjálfskiptur XV er með 60:40 (framan/aftan) afldreifingu á milli fram og afturhjóla sem gerir aksturinn einstaklega stöðugan. Stöðuleikastýring er einnig staðalbúnaður í nýja bílnum

Að sögn Lofts Ágústssonar, markaðsstjóra Ingvars Helgasonar, sem er með umboð Subaru á Íslandi, hafa þegar verið pantaðir nærri tíu bílar til landsins. Þeir verða hingað komnir fljótlega eftir áramót. Má svo gera ráð fyrir að fleiri bílar verði fluttir til landsins í framhaldinu en skv. alþjóðlegum viðmiðum Subau fær Ísland ákveðinn kvóta bíla í samræmi við fólksfjölda hér sem og markaðsstöðu. Áætlað verð á bílunum hérlendis verður um fimm millj. kr.

Sendibíll með sérstöðu

Hjá Ingvari Helgasyni hf. hefur sendibíllinn Renault Master selst ágætlega að undanförnu, að sögn Lofts Ágústssonar. Þessi nýja lína hefur sérstöðu sakir framúrskarndi eldsneytisnýtingu; eyðir í langkeyrslu ekki nema 7,5 lítra á hundraðið og um það bíl hálfum lítra meira í blönduðm akstri.

„Renault leggur mikið upp úr sölu og þjónustu til fyrirtækja og sérhæfir sig í lausnum fyrir notendur hvort heldur er í fjölbreytni í útfærslum á bílunum sjálfum eða þjónustu sem veita þarf notendum til að létta undir og gera upplifun sem ánægjulegasta. Við hjá B&L og Ingvari Helgasyni leggjum okkur fram um að þjónusta notendur bíla með sömu áherslum og framleiðandi leggur til og bætum jafnvel um betur með nýjum lausnum, svo sem endurgjaldslausri endurskoðun þar sem farið yfir helstu slit og öryggisþætti auk þess sem hægt er að beina athygli skoðunnarmannsins að einhverju tilteknu atriði sem bílstjórinn hefur áhyggjur af,“ segir Bjarni Þórarinn Sigurðsson sölustjóri Renault og bætir við að vinsælustu gerðir nýju Master bílana séu bæði til sýnis og reynsluaksturs fyrir áhugasama kaupendur en bílana megi fá í mörgum stærðum og útfærslum.

sbs@mbl.is