Hæstiréttur staðfesti í gær tveggja ára fangelsisdóm yfir þrítugri konu sem játaði að hafa dregið sér og notað heimildarlaust í eigin þágu samtals 335.

Hæstiréttur staðfesti í gær tveggja ára fangelsisdóm yfir þrítugri konu sem játaði að hafa dregið sér og notað heimildarlaust í eigin þágu samtals 335.768 evrur, rúmar fimmtíu milljónir króna, í starfi hjá sendiráði Íslands í Vín og síðar sem stjórnarráðsfulltrúi og starfsmaður á rekstrar- og þjónustusviði utanríkisráðuneytisins. Tuttugu og tveir mánuðir eru bundnir skilorði.

Konan millifærði í 193 skipti af reikningi í eigu íslenska sendiráðsins í Vínarborg, sem hún hafði prókúru fyrir, yfir á eigin bankareikning. Þá lét hún hjá líða að tilkynna að hún fengi enn staðaruppbót með sjálfvirkri millifærslu af sama reikningi í eigu íslenska sendiráðsins í Vínarborg og inn á eigin bankareikning í alls átta skipti. Fjárdrátturinn fór fram á tímabilinu 2. mars til 6. október 2009.

Í vottorði sérfræðilæknis á geðdeild Landspítala, sem var á meðal gagna málsins, kemur fram að konan hafi lýst mikilli vanlíðan, sektarkennd og erfiðleikum vegna spilafíknar. Hún hafi orðið fyrir miklum áföllum þegar hún var 19 ára en þá missti hún kærasta sinn af slysförum og vinkonu vegna voðaverks.

Héraðsdómur leit til aðstæðna konunnar þegar henni var ákvörðuð refsing, þess að hún hefði leitað sér hjálpar vegna spilafíknar og að hún ætti ung börn. Því var dómurinn að mestu bundinn skilorði.