Chevrolet Spark hefur fengið góðar viðtökur á Íslandi og bendir Jón Kr. Stefánsson sölustjóri Chevrolet hjá Bílabúð Benna á að bíllinn sé sparneytinn og verð hagstætt.
Chevrolet Spark hefur fengið góðar viðtökur á Íslandi og bendir Jón Kr. Stefánsson sölustjóri Chevrolet hjá Bílabúð Benna á að bíllinn sé sparneytinn og verð hagstætt. — Morgunblaðið/Sigurgeir S.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Merki Chevrolet, slaufan, er heimsþekkt. Umboðsfyrirtæki Chevrolet á Íslandi er Bílabúð Benna. Í tilefni aldarafmæli Chevrolet efnir fyrirtækið til Árs slaufunnar með margvíslegum tilboðum.

Jón Kr. Stefánsson sölustjóri nýrra Chevrolet-bíla segir ánægjulegt að á afmælisárinu sé smábíllinn Chevrolet Spark söluhæsti bíllinn hér á landi meðal almennings. „Þetta er mjög vel útbúinn smábíll og verðið er hagstætt. Sparkinn er afskaplega rúmgóður og staðalbúnaður er ríkulegur, öll umgengni um bílinn er þægileg og útlitið heillar,“ segir Jón. „Þegar eldsneytiskostnaðurinn er orðinn stór liður í heimilisbókhaldinu er eðlilegt að fólk gefi sparneytnum bílum gaum og leiti leiða til að lækka rekstrarkostnaðinn með öllum tiltækum ráðum. Ég tek líka eftir því að kaupendur smábíla vilja í auknum mæli hafa þá beinskipta, enda sjálfskiptir bílar yfirleitt eyðslufrekari. Sparkinn virðist uppfylla allar helstu kröfur almennings, enda sýna sölutölur að sú er raunin.“

Byltingarkenndur bíll

Á næstunni verða nýjar tegundir kynntar hér á landi, Chevrolet Cruze, Aveo og Orlando. Fljótlega á næsta ári kemur rafmagnsbíllinn Volt svo til landsins.

„Chevrolet Volt er byltingakenndur bíll sem vakið hefur mikla athygli í Bandaríkjunum og víðar. Það er hægt að aka honum 50-60 kílómetra á rafmagni eingöngu. Voltinn mun kenna okkur að nota rafmagnsbíla í daglega lífinu. Fólk hleður hann heima hjá sér og þarf aldrei að vera orkulaust á vegum úti. Með smá fyrirhyggju verður því ekkert mál að skutlast frá höfuðborginni norður til Akureyrar fyrir tiltölulega lítinn pening. Við bíðum öll spennt eftir komu hans til landsins á næsta ári og finnum jafnframt fyrir gífurlega miklum áhuga á markaðnum,“ segir Jón Kr. Stefánsson.

Chevrolet tapaði öllu sínu

Formlegur afmælisdagur er 3. nóvember, en það var einmitt þann dag fyrir einni öld sem Louis-Joseph Chevrolet stofnaði Chevrolet. Hann var vel þekktur í Bandaríkjunum sem kappakstursökumaður og vildi framleiða bíl sem gæti keppt við Ford T. Það tókst en jafnframt var áhersla lögð á að framleiða bíla á viðráðanlegu verði fyrir hinn almenna kaupanda. Chevrolet leitaði til W.C Durant sem einnig keppti í kappakstri og saman hönnuðu þeir sex strokka bíl sem kostaði 2150 dollara, sem þótti nokkuð dýr. Seinna komu bílar sem voru á mun hagstæðara verði. Fyrirtækið stækkaði og varð fljótt risi á bílamarkaðnum. W.C.Durant keypti Chevrolet árið 1917, en hann hafði þá lagt grunninn að General Motors. Til að gera langa sögu stutta, þá telst Chevrolet vera þriðja stærsta alþjóðlega vörumerkið innan bílaheimsins í dag. Frumkvöðullinn, Louis-Joseph Chevrolet tapaði öllum sínum auðæfum í kreppunni miklu árið 1929 og starfaði eftir það hjá Chevrolet sem bifvélavirki.

karlesp@simnet.is